Pro planche – Performance Chef skurðarbretti

Bossinn í eldhúsinu – nú í Performance útgáfu

Stærsta skurðarbrettið okkar, nú enn sterkara og stöðugra.

Performance Chef er hannað fyrir þá sem gera miklar kröfur í eldhúsinu. Fullkominn félagi í eldamennsku, bakstri og þegar þú vilt stilla upp og sýna matinn frá sinni bestu hlið.

Sameining náttúrulegra eiginleika, hreinlætis og einstakrar endingar er grunnurinn að Pro Planche.
Umhverfisvænt trefjaefni úr pappír er náttúrulegt, endingargott og einfaldlega fallegt. Performance línan tekur eiginleika Pro Planche enn lengra með extra sterkri grunnplötu, hálkuvörðum stálfótum og stærri safarauf.

Liturinn Slate er tímalaus og glæsilegur.

Skurðarbrettið má þvo í uppþvottavél og þolir hita allt að 170°C.

Stærð: 43,5 × 29 × 1,6 cm
Þykkt grunnplötu: 10 mm

kr.34.990

SKU PPPERF Vöruflokkar , , ,

Availability: Á lager

Eitt skurðarbretti – óteljandi notkunarmöguleikar

Performance Chef er stærsta skurðarbrettið frá Pro Planche og hentar fullkomlega til að skera, undirbúa mat, raða honum upp eða bera fram fyrir gesti.
Hjá Pro Planche er lögð rík áhersla á að brettin líti vel út og standi sig frábærlega, við hvaða tilefni sem er.

Sterkara og endingarbetra

Performance Chef er gert úr yfir 100 lögum af pappír sem gera brettið einstaklega sterkt og endingargott. Extra sterk 10 mm grunnplata gefur brettinu aukinn styrk og gerir það sérstaklega hentugt fyrir krefjandi og daglega notkun í eldhúsinu.
Stóra safaraufin tekur við allt að tvöfalt meira magni en hefðbundin safarauf og hentar því sérstaklega vel þegar skorið er kjöt, safaríkt grænmeti eða annað hráefni þar sem vökvi getur safnast fyrir.

Stöðugt á borðplötunni

Fjórir hálkuvarðir fætur úr ryðfríu stáli halda brettinu stöðugu á borðplötunni.
Það gerir Performance Chef sérstaklega þægilegt þegar unnið er með stærra hráefni eða þegar meiri kraftur er notaður við matargerð.
Á efra yfirborðinu er einnig innfelld plata úr ryðfríu stáli sem gefur Performance línunni sitt einkennandi útlit.

Endingargott og blíðlegt við hnífana

Þökk sé sérstöku framleiðsluferli og pappírsefninu sem notað er, er brettið einstaklega stöðugt og endingargott.
Hörkustig efnisins er stillt þannig að brettið er jafnframt blítt við hnífana svo þeir slitna síður og haldast beittir lengur.

Má fara í uppþvottavél

Hreinlæti skiptir okkur öllu máli, þess vegna má þvo Pro Planche Performance Chef í uppþvottavél.
Brettið er einnig hitaþolið allt að 170°C og því má meðal annars leggja heita potta og pönnur beint á það.

Framleitt í Austurríki – með ábyrgð

Pro Planche skurðarbrettin eru framleidd í Lienz í Austur-Týról.
Umhverfisvænar og plastlausar umbúðirnar koma einnig frá Týról.
Samfélagsleg ábyrgð og sjálfbærni í fyrirrúmi.

Skyldar vörur